18/06/2026
Takk fyrir komuna á opnun sumarsýningu Slunkaríkis síðasta föstudag.
Sýningin Fagurstúfur stendur yfir til 24. júlí og er alla jafna opin daglega frá kl. 10-18 en einnig má hafa samband í gegnum [email protected] fyrir aðra tíma.
Myndir: Helena Solveigar Aðalsteinsbur
---
Sýningin Fagurstúfur leiðir saman verk eftir Kötu Jóhanness og Rondi Park.
Á mörkum hins sýnilega og ósýnilega kanna listamennirnir hvernig við söfnum, varðveitum og miðlum sögum í gegnum hluti, myndir og efnisheiminn í kringum okkur.
Verkin spretta úr sameiginlegum áhuga á töfrum hversdagsins, arfleifð, umhyggju og þeim ósýnilegu öflum sem móta líf okkar. Plastgimsteinar, mosi, glimmer, litir og form birtast sem fjársjóðir sem bera með sér minningar, merkingu og möguleika.
Fagurstúfur er jafnframt hugleiðing um vináttu, fjölskyldu, ást og samveru; um það sem við veljum að halda í og það sem rennur okkur úr greipum. Hér verða tengslin sjálf að eins konar djásnum, þar sem fegurð, forvitni og umhyggja fléttast saman í leit að því sem skiptir máli.
Sýningarstjóri: Helena Sólveigar Aðalsteinsbur.