Gallerí Úthverfa / Outvert Art Space

Gallerí Úthverfa / Outvert Art Space Gallerí Úthverfa / Outvert Art Space
Aðalstræti 22 - 400 Ísafjörður Gallerí Úthverfa er nýtt gallerí í húsnæði Gamla Slunkaríkis, Aðalstræti 22 á Ísafirði.

Myndlistarfélagið á Ísafirði rak gallerí Slunkaríki í húsnæðinu á árunum 1985 – 2005 en þá var starfsemin flutt neðar í götuna í nýuppgert Edinborgarhúsið þar sem sýningar Myndlistarfélagsins hafa verið síðan. Sýningar Myndlistarfélagsins hafa ávallt verið metnaðarfullar og áhersla lögð á að gefa ungu og upprennandi listafólki tækifæri með því að sýna verk þeirra í galleríinu. Gallerí Slunkaríki

heitir eftir húsi sérvitringsins Sólons Guðmundssonar sem hann byggði á Ísafirði fyrir um einni öld síðan og var húsið úthverft, enda taldi Sólon að veggfóður væri fallegra en bárujárn og því ætti veggfóðrið að vera sýnilegt sem flestum. Seinna endurbyggði myndlistarmaðurinn Hreinn Friðfinnsson Slunkaríki í Hafnarfjarðarhrauni og er húsið þar enn. Slunkaríki Sólons er hins vegar löngu horfið. Heiti nýja gallerísins vísar í húsgerð Slunkaríkis Sólons en einnig það, að sýningarnar munu flestar miðast við að hægt sé að skoða þær um stóran glugga rýmisins sem blasir við vegfarendum um Aðalstrætið og þar af leiðandi má halda því fram að sýningarnar verði á úthvefunni. Gallerí Úthverfa er í eigu Elísabetar Gunnarsdóttur og verður rekið í samstarfi við myndlistarfólk og fagaðila í skyldum greinum innan svæðis sem utan. Fyrsta starfsárið 2013-2014 mun Gunnar Jónsson myndlistarmaður bera hita og þunga af skipulagningu sýninga. Gunnar er búsettur á Ísafirði og útskrifaðist úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2012. Starfsemi Gallerís Úthverfu/Outvert Art Space nýtur styrkja úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða og frá Ísafjarðarbæ.

Linda Steinþórsdóttir opnar sýninguna Hljóðlaust flæði miðvikudaginn 1. apríl kl. 16 - velkomin!
25/03/2026

Linda Steinþórsdóttir opnar sýninguna Hljóðlaust flæði miðvikudaginn 1. apríl kl. 16 - velkomin!

Linda Steinþórsdóttir 1.4 – 10.5 2026 Miðvikudaginn 1. apríl kl. 16 opnar sýning Lindu Steinþórsdóttur Hljóðlaust flæði - Silent flow – Lautloser fluss í Gallerí Úthverfu á Ísafirði. Listamaðurinn verður viðstaddur opnunina og boðið verður uppá léttar veitingar og spja...

Sýnishorn af jólamarkaði Úthverfu - opið næstu daga kl. 16-18 og lokað á sunnudðgum.
11/12/2025

Sýnishorn af jólamarkaði Úthverfu - opið næstu daga kl. 16-18 og lokað á sunnudðgum.

Jólamarkaður Úthverfu verður opinn laugardag kl. 12-14 og virka daga í næstu viku kl. 16-18. Lokað á sunnudag.
05/12/2025

Jólamarkaður Úthverfu verður opinn laugardag kl. 12-14 og virka daga í næstu viku kl. 16-18. Lokað á sunnudag.

05/12/2025

Jólamarkaðurinn verður opinn næstu daga kl. 16-18. Lokað á sunnudag

Bókin um Drífu Viðar og númeruð eftirprent af nokkrum verka hennar verða til sölu á jólamarkaði Úthverfu í desember........
03/12/2025

Bókin um Drífu Viðar og númeruð eftirprent af nokkrum verka hennar verða til sölu á jólamarkaði Úthverfu í desember.
......................

DRÍFA VIÐAR - málari, rithöfundur, gagnrýnandi, baráttukona

Ritstjórar Auður Aðalsteinsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir og Kristín Guðrún Jónsdóttir

Drífa Viðar (1920-1971) var myndlistarmaður, rithöfundur og gagnrýnandi og tók þátt í stjórnmálaumræðu síns tíma. Eftir hana liggja fjölmörg verk af ýmsum toga. Í bókinni eru greinar sem gefa innsýn í ævistarf hennar, um 100 myndverk sem sum hafa aldrei komið fyrir augu almennings áður, brot úr bréfum og ýmiss fróðleikur um ævi Drífu og störf.
Á 100 ára fæðingarafmæli Drífu skipulögðu afkomendur hennar og fjölskyldur þeirra málþing um ævi hennar og störf, og valin myndverk hennar voru tekin til sýningar. Bókin er afrakstur þess viðburðar.

Greinar bókarinnar gefa innsýn í fjölbreytt ævistarf Drífu. Í inngangi Kristínar Guðrúnar Jónsdóttur og Jóns Thoroddsen er fjallað um ævi hennar og hugðarefni. Helga Kress skrifar greiningu á skáldverkum Drífu, Aðalheiður Valgeirsdóttir fjallar um myndlist hennar og einnig er endurbirt grein Aðalsteins Ingólfssonar um myndlistarkonuna Drífu. Auður Aðalsteinsdóttir skrifar um bókmennta- og listgagnrýni hennar og Einar Steinn Valgarðsson tekur saman skrif um stjórnmálaþátttöku hennar.

Elísabet Gunnarsdóttir hafði umsjón með sérstökum kafla um myndlist Drífu Viðar þar sem finna má fjölda málverka og teikninga og einnig eru birt brot úr bréfum Drífu sem lýsa bæði tíðaranda og afstöðu hennar til listarinnar. Þá er gefin innsýn í önnur störf og áhugamál Drífu, svo sem þátttöku hennar í leiksýningum og barnatíma útvarpsins.

Bókin er skref í þá átt að gera ævistarf Drífu Viðar aðgengilegt bæði almenningi og fræðimönnum og stuðla að því að hún hljóti réttmætan sess í lista- og bókmenntasögunni.

Það var fjölmennt á opnun afmælissýningar Péturs Guðmundssonar - til hamingju Pétur!
01/11/2025

Það var fjölmennt á opnun afmælissýningar Péturs Guðmundssonar - til hamingju Pétur!

Address

Aðalstræti 22
Ísafjörður
400

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Gallerí Úthverfa / Outvert Art Space posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Gallerí Úthverfa / Outvert Art Space:

Share

Category