23/01/2025
stuttmyndin “uppgjör á jónsmessunótt” verður sýnd um helgina á myrkum músíkdögum laugardag kl 21 og sunnudag kl 22. myndin er draumferð 🌀☁️🌀 hefði ekki getað orðið án snillinganna sem lögðu okkur lið 🧡🧡🧡
Stuttmyndin Uppgjör á Jónsmessunótt eftir tónlistarmennina Jófríði Ákadóttur og Áslaugu Magnúsdóttur er stúdía eða hugleiðing um innbyggða tengingu fólks við náttúruna, skoðað útfrá minni Íslendinga um Jónsmessunóttina.
Jónsmessan var lengi mikill merkisdagur hér á landi og haldin heilög þangað til hún var numin úr helgidagatölu með konungsbréfi þann 26. október 1770. Einkum var af mikil trú á Jónsmessunóttinni. Þá flutu uppi náttúrusteinar eða komu upp, ef þeir voru til í jörðu eða brunnum, og varð þá að vera við til að ná þeim. Þá varð og að taka lásagras, mjaðjurt og þjófarót ef þau grös ættu að duga til þess sem átti að hafa þau, opna lása og sjá þjófa. Þá var döggin svo heilnæm að manni bötnuðu allir sjúkdómar ef menn veltu sér í henni allsberir. Þá hljóp kvikasilfur saman og gott var að sitja úti á krossgötum.
Í gegnum myndmál, tónlist, bókmenntir, sögu og samtöl er kafað ofan í viðfangsefnið sem fyrir vikið fer með okkur í draumkennda ferð þar sem horfst er í augu við trú og vantrú, forvitni og tengsl.