Jón Gnarr

Jón Gnarr INFP ADHD

X við C 😊
05/15/2026

X við C 😊

05/12/2026
Kæru vinirÍ morgun birti mbl.is frétt um það að ég hefði fengið greitt fyrir að koma fram með Sigurjóni Kjartanssyni í þ...
04/30/2026

Kæru vinir
Í morgun birti mbl.is frétt um það að ég hefði fengið greitt fyrir að koma fram með Sigurjóni Kjartanssyni í þætti Gisli Marteins á RÚV. Ekki kom fram hvað það væri rosalega mikið.
Þetta er því miður einungis pólitískur hráskinnaleikur og óvönduð blaðamennska. Það er ekkert sem kemur mér á óvart eða ég kippi mér upp við 😊
Þetta er bara enn eitt ágætis dæmið um góða samvinnu Sjálfstæðisflokkurinn og Mbl. Fulltrúi þeirra í stjórn RÚV kemur með fyrirspurn um það hvort ég hafi fengið borgað. Stefán Eiríksson útvarpsstjóri svarar því einhvernveginn og þannig er þetta búið til. En sjálfsagt að svara þessu.
Í vandaðri blaðamennsku er hefð fyrir því að ræða amk. við tvo heimildarmenn áður en skellt er í fullyrðingu og fyrirsögn. Á fagmáli kallast þetta The two source rule.
Ekki var neinn sem hafði samband við mig. Enginn hafði heldur samband við Sigurjón. Það var með vilja gert því þá hefði blaðamaður komist að sannleika málsins. En það var bara ekki tilgangurinn. Þetta er sprell.

Sannleikurinn er nefnilega sá að ég fékk ekkert greitt fyrir þessa framkomu. Og því síður sá Sigurjón krónu. Ég hef oft komið fram í þessum sama þætti og minnist þess ekki að hafa nokkurn tíma fengið greitt fyrir það eða ætlast til þess að fá greitt. Þannig að ég sé ekki betur en að fyrirsögnin sé tóm lygi. Aðstandendur þáttarins höfðu samband við okkur og báðu okkur um þetta atriði.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórninni fullyrðir líka á stjórnarfundi að ég sé yfirlýstur stuðningsmaður þess að Ísland gangi í Evrópusambandið. Ég er það ekki. Ég hef margoft lýst því yfir að ég sé aftur á móti opinn fyrir því að vega og meta kosti og galla slíkrar inngöngu.

Ég hef lengst af ævinnar verið sjálfstætt starfandi. Það er kannski erfitt fyrir jarðtengda embættismenn, sem hafa aldrei þurft að berjast áfram á hinum frjálsa markaði frumlegrar hugsunar, að skilja fólk einsog mig. Ég álasa þeim ekki. Mér er algjörlega frjálst að stunda mína liststarfsemi og hafa af henni tekjur þótt ég sé þingmaður.

Á löngum ferli þá hef ég komið fram í ótal skemmti- og spjallþáttum án þess að taka neitt fyrir það. Ég hef með því, reynt að leggja mitt af mörkum til að styðja Íslenska dagskrárgerð og innlenda framleiðslu og Íslenska tungu. Mér hefur fundist það ákveðin skylda. Ég hef líka leikið í fjölda útskriftarverkefna úr Kvikmyndaskólanum og stuttmyndum án endurgjalds. Ég hef heldur ekki tölu á því hvað ég hef tekið þátt í mörgum styrktarverkefnum og söfnunum fyrir hin ýmsu góðgerðarmálefni í gegnum tíðina. Það hefur verið mér heiður og ánægja. Ég hef reynt að nota hæfileika mína og velgengni til að láta gott af mér leiða, styðja við, vera hluti af og gefa til samfélagsins; Íslands sem ég elska af öllu hjarta ❤

Um nóbreiner Þjóðaratkvæða-greiðslan í ágúst virðist vera á allra vörum og er það vel, almenningur er reiðubúinn og vill...
04/29/2026

Um nóbreiner

Þjóðaratkvæða-greiðslan í ágúst virðist vera á allra vörum og er það vel, almenningur er reiðubúinn og vill upplýsast betur um málið.
Ég hef verið spurður af fjölmörgum hvort ég muni kjósa, já eða nei.

Mitt svar er einfaldlega á þá vegu að ég mun segja já í þessari umferð.
Hagsmunirnir eru einfaldlega of miklir.

Förum stutt yfir sviðið:

Viðskipti
Það er deginum ljósara að með inngöngu í Evrópusambandið og með upptöku EUR þá mun gagnsæi milli Íslands og meginlandsins aukast gríðarlega á efnahagssviðinu. Fjárfestingar erlendra aðila í bæði skráðum og óskráðum félögum hér heima fyrir munu aukast. Verðmæti þessara félaga munu hækka og tækifæri íslenskra lífeyrissjóða til frekari vaxtar munu aukast. Allir sem fylgjast með vita að íslenski hlutabréfamarkaðurinn hefur verið í frosti í nokkur ár og því veldur sú mikla einangrun sem fylgir krónunni. Það er beinlínis hættulegt að eignir lífeyrisjóðanna, eins geigvænlegar og þær eru, séu bundnar í klafa þess hagkerfis sem við búum við í dag. Þetta er fullkomin einangrunarhyggja og því er tímabært að opna islenska hagkerfið með upptöku EUR.
Sem dæmi má nefna að á suðurströnd Íslands er nokkur verkefni í gangi sem sameiginlega eru það langstærsta í Íslandssögunni.
Nú er verið að safna fé sem nemur 2-3 milljörðum EUR en uppbyggingin snýr að landeldi á laxi.
Fram til þessa hafa íslenskir bankar, fagfjárfestar og lífeyrissjóðir séð að svo til öllu leyti um fjámögnun verkefnisins en betur má ef duga skal. Erlenda fjárfesta verður að fá að borðinu til að klára verkið. Auðvitað er unnið að því hörðum höndum að laða inn fjárfestingu en það væri hægara um vik ef trúverðugur gjaldmiðill væri á Íslandi.
Á þessu stóra sviði sést hversu mikill akkílesarhæll íslenska krónan getur verið. Það er ekki einungis rándýrt að halda í hana fyrir litla þjóð, heldur er hún beinlínis þrándur í götu og truflandi þegar kemur að því laða inn erlenda fjárfestingu og stuðla að uppbyggingu sem mun færa okkur aukna velsæld og spennandi störf.

Alþjóðamál
Þetta blasir við okkur öllum. Breytt heimsmynd kallar á frekara og nánara samstarf við okkar helstu bandalagsþjóðir.
Persónulega hefur þessa breytta heimsmynd breytt ansi miklu í minni afstöðu.
Það sem er áhugavert er að stjórnarandstaðan vill læðast með veggjum, láta lítið á sér bera en þeirri leið fylgir engin stefna. Það er ekkert innihald, það á bara bíða og vona það besta. Sem fyrr þarf þjóðin okkar kjark og vitsmuni til að bregðast við og tek ég hattinn ofan fyrir því fólki sem nú stendur í eldlínu íslenskra stjórnmála og tekur högginn frá þeim sem eru öndverðri skoðun. Leikurinn er oft ljótur og tekur niður annars heilbrigða og góða ásýnd sem við Íslendingar eigum að standa fyrir. Við eigum að geta rökrætt án þess að láta sora og leiðindi fylgja með.

Fjölskyldurnar
Krónan er fjári dýr og mannamáli hefur hún gert það að verkum að kynslóð eftir kynslóð hefur ekki tekist að færa gamla peninga yfir á ungar fjölskyldur sem eru að hefja búskap. Þessar peningar hafa einfaldlega í áratugi verið brenndir á vaxtabáli og sem aldrei fyrr logar glatt í þessum forna fjanda. Eldurinn nærist á einu og það er íslenska krónan. Krónan veikir okkur gríðarlega og hef ég líkt fórninni svo; að einn ársfjórðung á hverju ári þurfum við öll að vinna frítt, eingöngu til að halda í krónuna. Þetta er döpur staðreynd og undarlegt er að enn séu til öfl sem vilja halda í krónuna.
Almennt verðlag mun breytast með upptöku EUR, gagnsæi í vöruverði og samkeppni á flestum sviðum mun stóraukast í stærra og opnara hagkerfi. Fyrir vikið munu fjölskyldur geta opnað ískápinn án þess að fölna yfir þeim kostnaði sem því fylgir.

Velsæld
Mælistikur á almenna velsæld eru nú að breytast, stikan fram til þess hefur eingöngu snúist um krónur og aura en ekki tekið inn aðra þætti sem mikilvægir eru einstaklingum og fjölskyldum til að lifa innihaldsríku og góðu lífi. Nú getur verið að einhver forngripurinn fussi en staðreyndin er þó sú að stærstu stofnanir veraldar eru að breyta mælistikunni sem notuð er til að meta almenna velsæld. Nýja mælistikan fellir framtíðarsýn herra Trump eða skulum við frekar kalla tálsýn herra Trump. Margir stjórnarandstöðuþingmenn hérlendis hafa einatt bent á hagvöxtinn í Bandaríkjunum, hann sé fremri þess evrópska og tala Evrópu niður við hvert tækifæri. En getur verið að velsæld Evrópubúans sé í raun betri og hlýrri?
Getur verið að 4 rauðir almanaksdagar á ári í Bandaríkjunum á móti 17 hér á Íslandi hafi áhrif á líf þeirra sem láta hjól hagkerfisins snúast, hinu vinnandi fólki? Getur verið að 2ja vikna árlegt frí á bandarískum vinnumarkaði á móti 5 vikum hér heima og í Evrópu hafi áhrif? Getur verið að kostnaður til lækninga og öryggi með almenna heilsu sé lakara hjá hinum almenna Bandaríkjamanni en þeim sem býr í Evrópu?
Getur verið að sú fjölbreytta evrópska flóra sem við Íslendingar njótum svo oft þegar við ferðumst sé í raun meira aðlaðandi?
Túrismi inn til Bandaríkjanna hríðfellur, við stjórnvölinn er maður sem er blindaður af græðgi og í raun lifandi vitnisburður um það sem við viljum ekki standa fyrir.
Stjórnarandstaðan á Íslandi lofar þennan mann, alla vega XD og XM. Ég hef setið veislur og viðburði þar sem hann er dáður og lofaður af fólki sem vill taka við stjórnartaumunum á Íslandi. Allt skal snúast um krónur og aura, völd og meiri völd.

Auðvitað segi ég já við því tækifæri að geta samið vel um inngöngu í Evrópusambandið.
Áður hef ég talað á móti inngöngu en ég hef breytt um skoðun og fyrir því eru ástæður. Orkumálin, landbúnaðurinn og sjávarauðlindin, þar er vissulega mikið undir.
Við þurfum okkar hæfasta fólk að borðinu. Evrópusambandið er langt því frá að vera fullkomið, báknið þar er þungt en blessunarlega viðurkenna stærstu þjóðir sambandsins hverjir gallarnir eru, en skyldi vera góð tíð í vændum fyrir Evrópusambandið? Nýr samningur við Indverja er spennandi, getur verið að frjáls og sameinuð Evrópa sé lykillinn að frekara öryggi og aukinni velsæld fyrir íslenskar fjölskyldur?
Liggur það ekki fyrir að láta reyna á samninginn með því kjósa já seinna í sumar?

-Gunnar Örlygsson fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokkurinn á facebook. Fyrirsögnin er þó mín 😁 (Tengill í fyrstu athugasemd).

Vikings in America
04/18/2026

Vikings in America

Ég hef um nokkuð langt skeið verið að reyna að fá Sigurjón til að gera sérstakan ESB Tvíhöfða þátt. Ég er kominn með fjö...
04/10/2026

Ég hef um nokkuð langt skeið verið að reyna að fá Sigurjón til að gera sérstakan ESB Tvíhöfða þátt. Ég er kominn með fjölda símanúmera í Evrópu, keiluhöll í Napólí, blómabúð í Þýskalandi og fleiri. Mig langar svo að hringja og heyra í manninum á hinni Evrópsku götu og eiga við hann persónulegt og heiðarlegt samtal. En Sigurjón hefur verið að draga lappirnar 😞😞

-What do you think, should Iceland join EU
-What is the word on the street, what are people saying ?
-What would it change for you if Iceland would join ?
-What would it mean to the EU as a whole if Iceland should join ?
-What message, in your opinion, would it send to China ?

Ég hef því stofnað til Þjóðaratkvæðagreiðslu á Facebook síðu Tvíhöfði og grátbið ykkur að líka við síðuna en fyrst og fremst að kjósa með hugmyndinni. Þegar þetta er skrifað hafa 95% sagt Já en einungis 5 % Nei

Endilega takið þátt ! Þitt atkvæði skiptir máli. Við látum ekki ráðskast með okkur. Lýðræðið skiptir máli. Sýnum Sigurjóni Kjartanssyni í eitt skipti fyrir öll að við erum þjóðin en ekki hann !

Þannig tínist tíminn Ég býð alla hjartanlega velkomna á þennan einstaka viðburð. Stutt og snörp málstofa um arfleifð og ...
03/23/2026

Þannig tínist tíminn

Ég býð alla hjartanlega velkomna á þennan einstaka viðburð.
Stutt og snörp málstofa um arfleifð og framtíð menningarminja í Færeyjum, Grænlandi og Íslandi verður haldin í Norræna húsinu, fimmtudaginn 26. mars nk. frá kl. 16:30 – 18.00. Skipuleggjendur málstofunnar eru Vestnorræna ráðið og Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins. Sögufélag er samstarfsaðili ásamt Norrænu ráðherranefndinni, Norræna félaginu, Félagi fornleifafræðinga, Fornleifastofnun Íslands og Minjastofnun Íslands.
Vera Illugadóttir verður fundarstjóri og kaffihlé er fyrir kaffiþyrsta á milli dagskrárliða.

Einsog fram hefur komið þá fór ég útí þetta pólitíska ævintýri mitt til að vinna að nauðsynlegum umbótum í málefnum barn...
03/18/2026

Einsog fram hefur komið þá fór ég útí þetta pólitíska ævintýri mitt til að vinna að nauðsynlegum umbótum í málefnum barna og hef lagt höfuðáherslu á þann málaflokk í starfi mínu sem þingmaður.

Í síðustu fjárlögum var milljarður settur í löngu tímabærar endurbætur á Stuðlum. Langtímameðferð fyrir stráka hefur nú tekið til starfa í Gunnarsholti eftir tveggja ára úrræðaleysi.

Ríkisstjórnin hefur nú samþykkt að skipa stýrihóp til að fylgja eftir tillögum að samþættri þjónustu við börn með vímuefnavanda. Starfshópur sem gerði tillögurnar segir að þjónusta sé að mörgu leyti brotakennd og ábyrgðarskipting óskýr. Tillögurnar þykja mér mjög skynsamlegar og hef fulla trú á að þær nái fram að ganga.

Uppfærð Barnaverndarlög verða kynnt fljótlega. Ég hef skoðað þau og tel þau til mikilla bóta.

Ég er mjög þakklátur fyrir það að ríkisstjórnin taki þessi mál svona skýrum og föstum tökum og sé líka svona samstíga í því að vilja augljóslega bæta hag barna á Íslandi. Og ég er mjög stoltur af því að eiga hlut í þessum mikilvægu umbótum.

Að fjárfesta í barni er að fjárfesta í bjartri framtíð Íslands

(Tengill á frétt í fyrstu athugasemd).

Hitti þessar glæsilegu konur og bað um að fá mynd með þeim. Ég tek nú þátt, sem þingmaður, í ráðstefnu UN Women í New Yo...
03/10/2026

Hitti þessar glæsilegu konur og bað um að fá mynd með þeim. Ég tek nú þátt, sem þingmaður, í ráðstefnu UN Women í New York. UN Women Nigeria
Respect, justice, peace 😊

Ég kom inní pólitíkina fyrst og fremst til að vinna að málefnum barna og ungmenna í vanda. Mér hefur fundist brýnasti va...
02/22/2026

Ég kom inní pólitíkina fyrst og fremst til að vinna að málefnum barna og ungmenna í vanda. Mér hefur fundist brýnasti vandinn vera hjá strákum í alvarlegum fíknivanda og fjölskyldum þeirra. Ég er búinn að eiga fjölda funda með fólki úr hinum ýmsu afkimum og sviðum samfélagsins. Það hefur margt áunnist. Ríkið hefur yfirtekið málaflokka af sveitarfélögunum. Við höfum náð að fjármagna endurbætur á Stuðlum og uppbyggingu Lækjarbakka í Gunnarsholti þar sem starfsemi mun hefjast á næstunni. Drög að nýjum Barnaverndarlögum eru komin í samráðsgátt. Mér fannst ríkisstjórnin bregðast almennilega við Bakkakotsmálinu svokallaða og ég hef einnig óskað eftir við Stjórnkerfis- og eftirlitsnefnd að gerð verði ítarleg úttekt á stöðu fósturbarna í dag. Mér heyrist líka nýr ráðherra barnamála hafa skýran vilja til að taka þennan málaflokk föstum tökum.
Ég óska Ásmundur Einar Daðason innilega til hamingju og óska honum góðs gengis. Hann er maður sem þekkir króka og kima stjórnkerfisins og öllum hnútum kunnugur og enda eldri en tvævetra í þessum málum. Ég vona að hann og ráðuneytið nái að koma saman góðum hópi og hrinda mikilvægum verkefnum í framkvæmd.
Ég mun að sjálfsögðu halda áfram að brenna fyrir þessum málum en fæ líka rými til að sinna öðru og koma að málefnum stráka úr öðrum áttum.

Valentínusar niðurtalningin er hafin! Almenn miðasala hefst föstudaginn 13 kl. 12!! Áskrifendur fá sólahrings forskot. G...
02/12/2026

Valentínusar niðurtalningin er hafin! Almenn miðasala hefst föstudaginn 13 kl. 12!! Áskrifendur fá sólahrings forskot. GEFÐU ÁSTINNI EÐA KOMDU VINNUFÉLAGA Á ÓVART MEÐ RÓMANTÍSKUM MIÐA Á BRÚÐKAUPSAFMÆLISHÁTÍÐ TVÍHÖFÐA Í VALENTÍNUSARGJÖF!!! Auka Valentínusar þáttur á hlaðvarpinu á laugardaginn. Opinn öllum!! Læ á það !

Address

United Nations Plaza 1 UN Plaza
New York, NY
10017

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Jón Gnarr posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Jón Gnarr:

Share