MögguHús ArtHoliday

MögguHús ArtHoliday Vatnslitamálun er ekki kapphlaup heldur leit að sjálfum þér. Nám í vatnslitun, ferðalag sem snýst um upplifun, mystik og töfra listamannsins. Kjörið t.d. aldar.

Kennari er Margrét Jónsdóttir listmálari. Sendið póst á [email protected] fyrir nánari upplýsingar. Boðið er uppá námskeið um vor, sumar og haust. Þetta er námskeið í vatnslitun og er ferðalag sem snýst um andlega næringu, upplifun, mystik og töfra listamannsins. Námskeiðið er fyrir byrjendur og lengra komna og hentar öllum sem unna listum og ævintýrum! fyrir grunn, framhalds og leikskó

lakennara. Unnið er undir berum himni í náttúrunni, þorpunum í kring og á vinnustofu sem verið er að gera upp spölkorn frá húsinu. Dvölin er 7 nætur og þar af 4 kennsludagar og ein til tvær dagsferðir eru farnar til að skoða gallerí og söfn eða önnur menningarverðmæti. Innifalið í verði: Kennsla í 4 daga, ein til tvær dagsferðir eru farnar til að skoða gallerí og söfn eða önnur menningarverðmæti, gisting í 7 nætur. Nothæfur vatnslitapappír en hægt að kaupa betri pappír. Eftirfarandi er skipulagningin á námskeiðinu en geta verið breytingar því við förum eftir veðri, vindum og hugdettum:
9:00 til 13:00 Kennsla í 4 daga á vinnustofunni, mæting kl. 9:00
Eftir hádegið vinna nemendur sjálfstætt, án kennara og æfa sig í vatnslitun og skissugerð. Ein til tvær dagsferðir eru farnar til að skoða gallerí og söfn eða önnur menningarverðmæti eða frjáls dagur fyrir hópinn. Ef hópurinn dvelur ekki í París við lok ferðar er mögulegt að fara í dagsferð þangað til að skoða eitthvert ákveðið safn. Hægt er að lengja dvölina. Nánari upplýsingar á vefsíðu námskeiðsins: https://frakklandsferdir.blogspot.com/

Listmálarinn Margrét Jónsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1953 og starfar að list sinni í Frakklandi og Íslandi. Hún hefur unnið sem myndlistarmaður um hálfa öld en 48 ár eru frá fyrstu sýningu hennar í London. Menntuð við Myndlista og Handíðaskóla Íslands, diplóma í frjálsri myndlist/grafík árið 1974. Masternám (Postgraduate) við Central Saint Martin’s College of Art í London árin 1974 til 1976. Myndlista og Handíðaskóla Íslands, diplóma í grafískri hönnun árið 1984. Diplóma frá Kennaraháskólanum árið 1997. Hún hefur haldið yfir 50 einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlendis. Margrét var einn af stofnendum Gallery Suðurgötu 7 sem var mikilvæg miðstöð í þróun framlínumyndlistar á Íslandi. Hún er í ritinu „Íslensk listasaga“, sem er fimm binda verk og spannar tímabilið frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. Einn af stofnendum Hagsmunafélags Myndlistarmanna sem var undanfari Sambands Íslenskra Myndlistarmanna ásamt stofnun SÍM. Verk eftir hana eru í eigu helstu listasafna landsins. Hefur hlotið ferðastyrki og starfslaun listamanna. Félagi í FÍM, Íslensk Grafík, SÍM, Nýlistasafninu. Margrét hlaut norræn vatnslitaverðlaun á þessu ári. The Winsor & Newton Prize. Verðlaun Norræna Vatnslitafélagsins/Col Art The Nordic Watercolor Association Prize 2023. Nánari upplýsingar um Margréti: https://www.instagram.com/mjons_artist/

"Að syngja, mála eða heimsækja gallerí eða safn hjálpar fólki að eldast hægar, samkvæmt nýjustu rannsókn sem tengir virk...
06/06/2026

"Að syngja, mála eða heimsækja gallerí eða safn hjálpar fólki að eldast hægar, samkvæmt nýjustu rannsókn sem tengir virkan áhuga á list og menningu við bætta heilsu."

Research from UCL suggests visiting art galleries or museums, singing and painting can help improve health outcomes

06/06/2026

Það vantar orðið námskeið í teikningu, eins og t.d. olíukrít. Ef einhver hefur áhuga á slíku námskeiði, sendið mér þá skilaboð.

Brian Eno on the purpose of art
01/06/2026

Brian Eno on the purpose of art

Celebrated artist and producer Brian Eno shares some of his theories on a range of topics, including evolution and art, at Design Indaba Conference 2007.

30/05/2026

The idea of happiness is far newer and far emptier than you think. Before the 14th century, nobody even had this obsession. Today? Everyone is performing joy while quietly falling apart!

30/05/2026

Sterkt myndmál Max Ernst (1891-1976) Baráttan fyrir lífinu! Horfið á myndina: 🔗 https://lnk.to/TFHN63yU

Address

Vogar

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when MögguHús ArtHoliday posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to MögguHús ArtHoliday:

Share

Category