Leikfélagið Peðið

Leikfélagið Peðið Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Leikfélagið Peðið, Performing Arts, Reykjavík.

16/01/2025

Halaleikhópurinn skipuleggur leiklestra af ýmsu tagi í vetur/vor.

Í tilefni að því sendir hópurinn eftirfarandi skilaboð til allra sem áhuga kunna að hafa:

Er langt síðan þú hefur stigið á svið ?
Blundar bakterían í þér ennþá ?
Ertu í stuði?
Hefurðu áhuga á að taka þátt í leiklestrar verkefni?

Verkefni sem skuldbindur þig ekki í langan tíma, við stífar æfingar líkt og á fullbúnu leikriti heldur mun skemmri tíma sem þú getur gefið þér í að prófa að lesa leikrit fyrir framan áhorfendur, eftir stutt æfingaferli.

Þú þarft samt að gefa þér tíma í nokkur kvöld og mögulega nokkrar helgar, en það fer eftir umfangi verksins. Það verður allt gert í samráði við þig og aðra þátttakendur

Er þetta fyrir þig?
Guðjón Sigvaldason leikstjóri – byrjar með fyrstu leiklestrana og er að leita eftir fólki sem er áhugasamt – fyrsti kynningarfundur er laugardaginn 18 janúar kl. 13.00 í húsnæði Halaleikhópsins Hátúni 12 að neðanverðu, inngangur nr. 3.

Áætluð frumsýning á fyrsta leiklestrarverkefni er síðan Föstudaginn 31 janúar – sem og sýningar 1 og 2 febrúar – mögulega líka helgina á eftir.

Fyrstu verkefnin á leiklestrarlistanum eru verk eftir: Jón Benjamín Einarsson, Jónínu Leósdóttur, Sigríði Láru Sigurjónsdóttur, Guðjón Sigvaldason ofl.

Ath flest þessara verka eru frumflutningar.

Ertu blundandi skúffuskáld?
Áttu handrit að leikverki sem þig langar að hlusta á leiklesið ?
Handritin þurfa ekki að vera fullbúin og þau mega vera drög eða hlutar – stutt eða löng – létt eða þung.Við erum ekki að leita eftir verkum eftir snillinga, það er öllu líklegra að þú verðir snillingur meðendurtekinni reynslu við að skapa eitthvað. Því ekki að gefa þér tækifæri á að fá verkið sem blundar í þér leiklesið af leikurum á öllum aldri eftir stutt æfingaferli, leikstýrt af atvinnuleikstjórum og/eða öðrum og sýnt fyrir áhorfendur. Þar færðu tækifæri til að heyra og sjá hvernig verkið virkar á þig sem og aðra.

Ef þú kemst ekki á fyrsta kynningarfund, en hefur áhuga, vertu í sambandi við:
Halaleikhópnum – Leiklist fyrir alla með skilaboðum í síma. 897-5007 eða á halaleikhó[email protected].
Kíktu í kaffi til okkar á laugardagsmorgnum milli kl. 11 og 13 í Hátún 12 – inngangur nr. 3 að neðanverðu.

Jólapera er jólalasöngleikur Peðsins að sjálfsögðu eftir Jón Benjamín í leikstjórn Vilhjálmur Hjálmarsson var sýnt á hin...
23/12/2022

Jólapera er jólalasöngleikur Peðsins að sjálfsögðu eftir Jón Benjamín í leikstjórn Vilhjálmur Hjálmarsson var sýnt á hinum horfna menningarstað Grand Rokk þegar hann var, hét og blómstraði ❤️
Góða skemmtun og gleðileg jól
😘

Leiðfélagið Peðið

12/01/2019

Facebook tilkynnti mér áðan að leikfélagið PEÐIÐ hefði 240 aðdáendur.
🤔
Kallar þetta á viðbrögð ?

24/12/2017

Best Pop Christmas Songs Collection 2018 - The Most Popular Christmas Songs - Merry Christmas 2018 Best Pop Christmas Songs Collection 2018 - The Most Popula...

15/12/2017

Já já elskurnar það er á morgun 16. desember klukkan 4 sem leikfélagið PEÐIÐ býður ykkur velkomin að kostnaðarlausu í Bíó Paradís til að mynnast fráfalls tónskálds leikfélagsins Björgúlfus Egilssonar =Bögga með því að sýna upptökur af 2 verkum félagsins þ.e. hinni goðsagnarlegu Barperu og í anda Jólanna Jólaperu þar sem höfuðskáld leikfélagsins bætir upp ákveðna eyðu í Jólaguðspjallinu þ.e. hverning þetta kom Jósef smið (jarðbundnum) manni fyrir sjónir. Velkominn öll. Happy hour á barnum frá 15.30 Sýningar hefjast kl 16.00. Sögulok og e.t.v. eftirpartý kl 18.00. Það er leyfilegt að syngja með !!! 😄 😘

11/06/2017

Í gærkvöldi komu saman nokkrir af stofnendum Peðsins. Með aðstoð nokkurra bjóra voru síðan frekar fátæklegar en áhugaverðar eigur félagsins skoðaðar og síðan deilt og gefið 2 félögum þ.e. Halaleikhópnum og Rauða krossinum. Jón og frú framreiddu að lokum góðan mat og sterkari drykki í eftirrétt 😊 Mjög ánægjulegt kvöld þar sem viðraðar voru hugmyndir um sýningarnar á nokkrum verkum Peðsins sem til eru flest á diskum í sal með góðu tjaldi og sándi. Það er komið í ferli. Hafið því augu og eyru opin fyrir þessu elsku Peð. Sjáumst 😘 Gunsó

Félagsheimilið Seltjarnarnesi 29 mars kl 20.00
23/03/2017

Félagsheimilið Seltjarnarnesi 29 mars kl 20.00

10/10/2016

Opna sýninguna Innri Náttúra/Nature within á morgun Mánudaginn 10 okt. Í gallerí hún&hún skólavörðustíg 17. milli kl 17.00 og 19.00. Þetta er sú fyrri af tveimur sýningum sem ég verð með þar nú á næstunni, í okt og nóv. Líttu við ef þú sérð þér fært. mbk gjess (guðjón sigvaldason) Alex Júníus verður einnig með prótótýpur af borðum sem hann er að hanna.
Nature Within art exhibition opening tomorrow.

19/09/2016

Heimilislaus - eftir hrakhóla síðustu ára, erum við vonandi komin með félagsheimili fyrir okkar líka. Frá og með miðvikudeginum 21 sept, opnar Bar 11, Hverfisgötu 18, dyrnar fyrir okkur, frá kl 15.00 til 22.00 alla daga (og er svo opin lengur á fim, föst og laugardagskvöldum). Þetta er tilraun til að koma saman, hrakhólasamfélaginu, sem aðstæður hafa komið burt af öðrum veitingastöðum. Og erum við þakklát þeim sem hafa tekið á móti okkur í millitíðinni. Verð verður á viðráðanlegum nótum og Opnunardaginn mun Andrea okkar Gylfadóttir og Magnús R Einarsson taka nokkur heimilisleg lög okkur til gleði. - Skip bó spil verða á staðnum. Til að þetta gangi þurfum við að snúa bökum saman og mæta til að hitta hvort annað. F/h nefndarinnar mbk. guðjón

Address

Reykjavík

Telephone

+3548676603

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Leikfélagið Peðið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Leikfélagið Peðið:

Featured

Share