24/04/2026
Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar
Þáttur #6 | Brynjar Karl Sigurðsson kemur út 25. apríl!
Brynjar Karl Sigurðsson, stofnandi Aþenu körfuboltafélagsins, er gestur í þætti #6 af Týndu Strákunum.
Í þættinum ræðum við Aþenu, baráttu Brynjars og það sem gerist þegar fólk reynir að byggja upp starf fyrir börn og ungmenni en mætir kerfi sem virðist of oft verja sjálft sig betur en þau sem það á að þjóna.
Við ræðum gaslýsingu, stjórnsýslu, þöggun og það hvernig mikilvægt starf getur lent í veggjum sem erfitt er að útskýra með almennri skynsemi.
Við þáttastjórnendur fórum á æfingu hjá Aþenu og ræddum þar við móður einnar stúlku. Hún lýsti starfinu sem einstöku og sagði það í raun hafa bjargað dóttur sinni. Það samtal situr eftir og setur umræðuna í skýrt samhengi. Hér er ekki verið að tala um hugmynd á blaði. Hér er verið að tala um börn, traust, öryggi og starf sem skiptir raunverulegu máli.
Brynjar segir meðal annars frá sláandi atviki þar sem matur sem félagið ætlaði að gefa stelpum hafi verið skemmdur. Hann lýsir líka hvernig rými sem gæti nýst til að skapa samfélag, styrk og skjól fyrir ungar stelpur standi tómt í stað þess að vera nýtt.
Við ræðum einnig okkar eigin samskipti við stjórnvöld og stofnanir. Það vekur spurningar þegar mál sem varða börn, úrræði, ábyrgð og kerfisbresti mæta þögn eða undanbrögðum. Hvorki heilbrigðisráðherra né mennta og barnamálaráðherra hafa svarað boði okkar um að koma í þáttinn.
Barna og fjölskyldustofa hafnaði einnig þátttöku og vísaði til þess að stofnunin geti ekki tjáð sig um einstök mál eða málefni skjólstæðinga. Við skiljum að stofnunin sé bundin trúnaði í einstökum málum. En þegar alvarlegar frásagnir, gögn og endurtekin mynstur birtast aftur og aftur, þá er ekki nóg að vísa allri umræðu frá sér. Kerfið þarf að geta rætt ábyrgð, verklag og almennar brotalamir án þess að fela sig á bak við þagnarskyldu.
Þessi þáttur er um íþróttir, börn, vald, kerfi og fólk sem syndir á móti straumnum þegar straumurinn liggur í ranga átt.
Þátturinn er jafnframt fyrsti þáttur Týndu Strákanna sem kemur út í mynd og verður aðgengilegur á YouTube og Spotify.
Týndu Strákarnir eru framleiddir af Samson.is í samstarfi við Raddir hlaðvarpsupptökuver.