Fimmtudagurinn langi

  • Home
  • Fimmtudagurinn langi

Fimmtudagurinn langi Fjöldi safna og sýningastaða bjóða upp á lengdan opnunartíma síðasta fimmtudagskvöld hvers mánaðar.

Það styttist í næstu kvöldopnun sýningarstaða, 29. janúar 💥
22/01/2026

Það styttist í næstu kvöldopnun sýningarstaða, 29. janúar 💥

Njóttu myndlistar fram á kvöld, síðasta langa fimmtudag ársins!
25/11/2025

Njóttu myndlistar fram á kvöld, síðasta langa fimmtudag ársins!

Fimmtudaginn 30. október opnar Ragna Róbertsdóttir sýningu í Gallerí i8, Margrét Elísabet Ólafsdóttir ræðir um líf og li...
28/10/2025

Fimmtudaginn 30. október opnar Ragna Róbertsdóttir sýningu í Gallerí i8, Margrét Elísabet Ólafsdóttir ræðir um líf og list Steinu í Listasafni Reykjavíkur — Hafnarhúsi og Ólöf Rún Benediksdóttir býður upp á spunahljóðverk í Listasafni Íslands.
Það er opið lengur hjá fjölda sýningarstaða og margar spennandi sýningar að sjá. Íslenski myndlistarveturinn upp á sitt besta!

Það er fjörugur fimmtudagur í vændum nú þegar haustið er hafið. Fyrirbæri gallerí við Ægisgötu verður með eins dags sýni...
23/09/2025

Það er fjörugur fimmtudagur í vændum nú þegar haustið er hafið. Fyrirbæri gallerí við Ægisgötu verður með eins dags sýningu, listamenn taka á móti gestum í Glerhúsið Reykjavík Glerhúsinu, Nýlistasafnið (The Living Art Museum) Nýlistasafninu og SIND gallery. Opið verður til kl. 21 í OPEN við Ánanaust og hjá i8, bæði í Tryggvagötu og Granda og einnig í H,A,K,K gallery við Óðinsgötu.

Missið ekki af fimmtudeginum langa, 25. september!

Það lítur út fyrir metþátttöku í fimmtudeginum langa núna 28. ágúst. Átta sýningarstaðir hafa tilkynnt þátttöku svo mynd...
25/08/2025

Það lítur út fyrir metþátttöku í fimmtudeginum langa núna 28. ágúst. Átta sýningarstaðir hafa tilkynnt þátttöku svo myndlistarunnendur hafa úr nægu að velja!

Fimmtudaginn langa ber upp á síðasta dag mánaðarins, 31. júlí. Upplagt er að skoða sýningarnar í Listasafn Íslands / Nat...
15/07/2025

Fimmtudaginn langa ber upp á síðasta dag mánaðarins, 31. júlí. Upplagt er að skoða sýningarnar í Listasafn Íslands / National Gallery of Iceland sem býður gestum frítt inn frá kl. 17 í tilefni dagsins. Frá kl. 19-21 munu sýningarstjórar og aðstandendur sýningarinnar Sending frá Svalbarðseyri bjóða upp á kvöldkaffi í Nýlistasafnið (The Living Art Museum) í tilefni af síðustu sýningarviku. Þá er boðið upp á leiðsögn listamanna í Listasafn Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum, þar sem Hrafnkell Sigurðsson og Rúrí taka á móti gestum á sýningunni Höfuðskepnur sem stendur yfir í Hafnarhúsi. Leiðsögnin hefst kl. 20.

Dagskráin 26. júní: Kling & Bang - Grotto RE: Leiðsögn listamannaListasafn Reykjavíkur - Hafnarhús - Allt sem ég vil seg...
23/06/2025

Dagskráin 26. júní:

Kling & Bang - Grotto RE: Leiðsögn listamanna
Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús - Allt sem ég vil segja þér: Leiðsögn listamanna
Á milli - Orðið fyrir norn er frumkvöðull: Opnun
Nýlistasafnið - Sending frá Svalbarðseyri: Kvöldkaffi
Phenomenon Gallery - Symbiosis: Lokahóf

Opið er lengur í Listasafni Íslands, í Grafíkfélaginu og i8 Gallery, Tryggvagötu og Marshallhúsi.

Fimmtudagurinn langi - 29. maí 2025Uppstigningadagur Stóru söfnin í Reykjavík bjóða upp á flotta viðburði: Í Listasafn Í...
21/05/2025

Fimmtudagurinn langi - 29. maí 2025
Uppstigningadagur

Stóru söfnin í Reykjavík bjóða upp á flotta viðburði:

Í Listasafn Íslands / National Gallery of Iceland verður sólarhringssýning á verðlaunaverkinu "The Clock" eftir Christian Marclay frá árinu 2010. Sýningin stendur frá kl. 17 á fimmtudegi til kl. 17 á föstudegi. Föstudaginn 30. maí opnar kaffihúsið Kaktus extra snemma í safninu, eða kl. 8.

Í Listasafn Reykjavíkur / Reykjavík Art Museumsafni verður opnuð í D-sal sýningin "Allt sem ég vil segja þér". Þetta er 51sta sýningin í D-sal og að henni stendur listafólkið Sadie Cook og Jo Pawlowsla.

Gerðarsafn Kópavogur Art Museum verður opið til kl. 21:00, en þar gefur að líta nýjar yfirlitssýningar á verkum Guðrúnar Bergsdóttur (1970–2024), í sýningarstjórn Hildigunnar Birgisdóttur annars vegar og yfirlit verka Barböru Árnason (1911-1975), í sýningastjórn Brynju Sveinsdóttur og Hallgerðar Hallgrímsdóttur hinsvegar. Brynja og Hallgerður verða með leiðsögn um sýninguna kl. 20:00.

Í SÍM - Samband Íslenskra Myndlistarmanna Gallery í Hafnarstræti verður sýningin "Draumur völvunnar" eftir Arthur Ragnarsson sömuleiðis opin til kl. 21:00.

Einhverjir sýningastaðir eru lokaðir á Uppstigningadag.

Fimmtudaginn langa ber upp á sumardaginn fyrsta, 24. apríl, og án efa verður líflegt í bænum. Vegna páskanna erum við ei...
22/04/2025

Fimmtudaginn langa ber upp á sumardaginn fyrsta, 24. apríl, og án efa verður líflegt í bænum. Vegna páskanna erum við eilítið sein með upplýsingar en reynum að bæta við eftir því sem við vitum meira.

Sýningarstjórinn Pari Stave verður með leiðsögn á ensku um sýninguna Nánd hversdagsins í Listasafn Íslands / National Gallery of Iceland kl. 20:00.

Í Nýlistasafnið (The Living Art Museum) kl. 17:00 mun listahátíðin Vor / Wiosna - sem oftast fer fram á Austurlandi - taka yfir Limbó og Lestrarfélagið.

Fimmtudagurinn langi rennur upp núna á fimmtudaginn 27. mars. Það verður nóg um að vera í borginni nú þegar allt er að l...
25/03/2025

Fimmtudagurinn langi rennur upp núna á fimmtudaginn 27. mars. Það verður nóg um að vera í borginni nú þegar allt er að lifna við og vorði farið að minna á sig.

Listasafn Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum
Höggmyndagarðurinn
BERG Contemporary
Norræna húsið The Nordic House
Nýlistasafnið (The Living Art Museum)
Listasafn Íslands / National Gallery of Iceland
Gerðarsafn Kópavogur Art Museum
Gallery i8
SÍM - Samband Íslenskra Myndlistarmanna

Að venju bjóða valdir sýningarstaðir upp á lengri opnunartíma og viðburði á Fimmtudaginn langa, sem næst ber upp á 27. f...
24/02/2025

Að venju bjóða valdir sýningarstaðir upp á lengri opnunartíma og viðburði á Fimmtudaginn langa, sem næst ber upp á 27. febrúar. Tilvalið að bregða sér af bæ og skoða myndlist í borginni!

Listasafn Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum
Listasafn Íslands / National Gallery of Iceland
Gallery i8
Fyrirbæri - Phenomenon
SÍM Residency, Reykjavík
Gallerí undirgöng-Gallery Underpass

Fimmtudagurinn langi rennur upp í vikunni, þann 30. janúar bjóða valdir sýningarstaðir upp á lengri opnunartíma og ýmsa ...
28/01/2025

Fimmtudagurinn langi rennur upp í vikunni, þann 30. janúar bjóða valdir sýningarstaðir upp á lengri opnunartíma og ýmsa viðburði.

Í Gallery i8 verður opnuð sýning á verkum Kristjáns Guðmundssonar, Svo langt sem rýmið leyfir kl. 17:00.
Í Listasafn Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum - Hafnarhúsi verður gjörningur kl. 20:00, þegar Miriam Markl skapar hreyfanlegt kort. Kl. 21:00 leiðir Styrmir Örn Guðmundsson gesti um sýningu Hreins Friðfinnssonar, Endrum og sinnum, með leiðsöngvahljóðsögn.
Á Kjarvalsstöðum verður Silja Bára Ómarsdóttir með leiðsögn um sýningu Hallgríms Helgasonar, Usla kl. 20:00.
Í Listasafn Íslands / National Gallery of Iceland verður á Verkstæðinu sýnd heimildarmyndin Nothing Special um danska ljósmyndarann Joakim Eskildsen. Sýningin hefst kl. 19:00.
Páll Stefánsson ljósmyndari tekur á móti gestum í safninum milli kl. 20:00-21:30 og veitir tilsögn í ljósmyndun. Gestir eru hvattir til að koma með eigin myndavélar.
Í Fyrirbæri - Phenomenon opnar sýning á verkum Unu Gunnarsdóttur, fyrirgef mér námslánin mín, kl. 17:00.
Í Kling & Bang verður opið til kl. 21:00, en þar eru sýningar Ólafar Bóadóttur og Joe Keys, Óðamála og Else.
Í Nýlistasafnið (The Living Art Museum) verður listamannaspjall og upplestur með Claudiu Hausfeld og Gabriel Dunsmith kl. 18:00.

Fleiri viðburðir kunna að skjóta upp kollinum og eflaust er opið víðar - endilega fylgist með og góða skemmtun!

Address

Miðborg Reykjavíkur

101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fimmtudagurinn langi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Fimmtudagurinn langi:

  • Want your establishment to be the top-listed Arts & Entertainment?

Share