Margt Smátt

Margt Smátt Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Margt Smátt, Visual Arts, Keflavík.

Sooooo gooood
30/10/2024

Sooooo gooood

Brenda Lee is the second studio album by American pop and country artist Brenda Lee. The album was released August 1, 1960 on Decca Records and was produced ...

Við upphaf níundu aldar réðu yfir nyrsta hluta Skotlands ættflokkur Pikta sem sjálfir nefndu sig Kata (Cat,Chat, Catt) L...
19/10/2024

Við upphaf níundu aldar réðu yfir nyrsta hluta Skotlands ættflokkur Pikta sem sjálfir nefndu sig Kata (Cat,Chat, Catt) Land sitt nefndu þeir Gallaibh eftir hernám norrænna manna en það þýðir á gelísku "meðal ókunnugra". Konungsríki þeirra náði einnig til Hjaltlandseyja sem hétu þá á gelísku, málinu sem Katar mæltu á, Innse Chat (eyjur Kata) sem síðan varð að Shetland Islands og hefur ekkert með "hjöltu" að gera.

Þegar að norrænir menn hófu að hernema Skotlandsstrendur nefndu þeir Gallaibh Katanes eftir íbúum landsins og ber svæðið það nafn enn eða Caithness.

Piktar sem hurfu sem þjóð á dularfullan hátt á seinni hluta níundu aldar, skildu eftir sig tákn og myndmál á bautasteinum sem erfitt hefur reynst í að ráða. Eitt frægasta og algengasta tákn þeirra er piktíska dýrið. (sjá mynd) Þar tel ég að komin sé stílfærð útgáfa af hinu fornfræga Loch Ness skrímsli.

Nokkru sunnar við Katanes á Skotlandi er vatnið Loch Ness þar sem frægasta vatnaskrímsli veraldar er sagt eiga heima. Þjóðsagan um það er mjög gömul en elstu heimildir um skrímslið er að finna í Ævisögu heilags Columba (565) eftir munkinn Adomnán, sem rituð var seint á 6. öld.

Víkur nú sögunni heim til Íslands því í Landnámabók segir svo;

"Svartkell hét maður katneskur; hann nam land fyrir innan Mýdalsá milli (og) Eilífsdalsár og bjó að Kiðjafelli fyrst en síðan á Eyri." Sá bær er nefndur eftir eyri þeirri hinni miklu Hvalfjarðareyri, sem nær langt út í Hvalfjörð. Rétt handan eyrarinnar er nes það sem heitir Katanes og Svartkell hefur trúlega gefið nafn. Tjörn á nesinu var nefnd Katanestjörn sem ræst var fram en er nú afturgengin samkvæmt nýfengnum heimildum.

Svartkell lét sér ekki nægja að nefna staði eftir heimaslóðum sínum á Skotlandi heldur flutti hann einnig með sér, beint aðe óbeint sögurnar, því í Katanestjörn bjó skrímsli. Þegar að sögur tóku að berast hingað löngu seinna, af Loc Nes skrímslinu seint á 18 öld en það sást eftir langan dvala árið 1871, vöknuðu sögurnar af aftur af Katanesdýrinu sem sást oft á árunum 1874 til 1876.

Til er nokkuð greinargóð lýsing á Kataness-óvættinum og er hún svona:

"það er á stærð við þrévett naut, aflangt nokkuð með langan haus og hala afar mikinn, á að giska þriggja álna langan, hvítleitt um búkinn, en hausinn rauður. Það hafði s*x stórar klær á hverjum fæti eða löpp, en fæturnir stuttir, kjafturinn ákaflega mikill og framtennur fjórar í, miklar og hvassar, eyru hafði það lafandi, en þó sáu menn það reisa þau beint upp. Hvorki sáu menn hár né hreistur á húð þess, heldur því líkast sem hausinn og halinn væri húðlaus og sæi í rauða kvikuna. Það sögðu þeir, sem sáu dýrið í tjörninni, að það synti afarfljótt."

Piktinn Svartkell varð ættstór maður því Landnáma heldur áfram til að segja okkur af afkomendum hans : "Hans son var Þorkell faðir Glúms, er svo baðst fyrir að krossi: „Gott ey gömlum mönnum, gott ey ærum mönnum.“ Hann var faðir Þórarins, föður Glúms."
Í dag geta ófáir Íslendingar eflaust rekið ættir sínar aftur til Svartkells, Þorkels og Glúms og þar með til hinna herskáu Pikta í Skotlandi.

Fyrir botni Hvalfjarðar settist að annar Vestmaður; Írinn Ávangur sem einnig varð ættstór á Íslandi. Landnáma segir:

"Maður hét Ávangur, írskur að kyni; hann byggði fyrst í Botni. Þar var þá svo stór skógur, að hann gerði þar af hafskip. Hans son var Þorleifur, faðir Þuríðar, er átti Þormóður Þjóstarsson á Álftanesi og Iðunnar Molda-Gnúpsdóttur. Sonur Þormóðar var Börkur, faðir Þórðar, föður Auðunar í Brautarholti.Kolgrímur hinn gamli, son Hrólfs hersis, nam land út frá Botnsá til Kalmansár og bjó á Ferstiklu. Hann átti Gunnvöru, dóttur Hróðgeirs hins spaka. Þeirra börn voru þau Þórhalli, faðir Kolgríms, föður Steins, föður Kvists, er Kvistlingar eru frá komnir. Bergþóra var dóttir Kolgríms hins gamla, er átti Refur í Brynjudal."

Margir hafa hnotið um þá staðhæfingu að á Íslandi hafi vaxið nægilega stæðilegur skógur að hægt hafi verið að smíða úr honum hafskip. Auðvitað er skýringin sú að hafskip þau sem Írar smíðuðu og kallast curach (kʊɾˠəx) á N-Írlandi, kanói á S-Írlandi og á íslensku kúði, þurftu ekki gilda harðviðarplanka. Þeir voru gerðir úr viðarramma sem á voru strekktar húðir og slíkan ramma má gera hvort heldur úr birki, reyniviði eða blæösp. Til er líkan úr gulli af slíku skipi frá fyrstu e.K. öld þar sem gert er ráð fyrir 18 ræðurum, hefur siglutré, rá og reiða. Tim Severin sýndi fram á sjófærni slíkra fleyja þegar hann sigldi húðskipinu Brendan frá Írlandi til Íslands 1976.

04/10/2024

"I think if Donald Trump and JD Vance met Jesus today, they would ridicule him as a single, childless hippie."

14/09/2024

Now that we’ve shown that it’s possible to begin a campaign for President just three months before the election, let’s always do that.

05/08/2024

Go to https://ground.news/charts to see all sides of every story on the Trump family and more. Subscribe through my link to save 40% off unlimited access.CRE...

29/06/2024
14/06/2024

Allan Lichtman, creator of 13 Keys to the White House, accurately predicts presidential elections. In this video, he goes through his prediction model and ex...

Address

Keflavík
230

Telephone

+3548482928

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Margt Smátt posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Margt Smátt:

Share

Category