Leikflokkur Húnaþings vestra

Leikflokkur Húnaþings vestra Frábær hópur Húnvetninga sem finnst gaman að skemmta sjálfum sér og öðrum með söng og sprelli.

T A K K ! ! !TAKK þið yndislega fólk fyrir að mæta á sýningarnar okkar á Addams fjölskyldunni.TAKK fyrir að fyrir að ver...
07/04/2026

T A K K ! ! !

TAKK þið yndislega fólk fyrir að mæta á sýningarnar okkar á Addams fjölskyldunni.
TAKK fyrir að fyrir að vera svona skemmtilegur salur alltaf hreint.
TAKK fyrir að taka svona vel á móti okkur.
TAKK fyrir að koma aftur á sýningar.
TAKK fyrir að koma frá öðrum landshornum á sýningar.
TAKK fyrir að leyfa okkur að skemmta okkur vel við að skemmta ykkur.
TAKK öll þið sem komuð að þessari uppsetningu á einn eða annan hátt.
TAKK fyrir að vera frábær!

Við kveðjum Addams fjölskylduna með trega og vonum að þetta sé ekki síðasta kveðjustundin.

ÖMURÐ!

L O K A S Ý N I N G  ! ! !Þá er komið að því. Allra síðasta sýningin á Addams fjölskyldunni verður í kvöld. Þetta er búi...
06/04/2026

L O K A S Ý N I N G ! ! !

Þá er komið að því. Allra síðasta sýningin á Addams fjölskyldunni verður í kvöld. Þetta er búið að vera svo skemmtilegt ferli að það verður svolítil sorg að kveðja fjölskylduna í kvöld. Jafnvel óbærileg sorg, svona álíka og Fester upplifir of oft.

Það góða er að þið verðið í salnum að kveðja þau með okkur. Það eru vissulega örfá sæti laus, en þau eru fljót að fara svo við myndum hafa hraðar hendur ef við værum þið. Þið munið, tix.is er með miðasöluna og ef ykkur vantar aðstoð við miðakaup þar, þá megið þið hóa. Við erum boðin og búin.

Við sjáumst í kvöld!

G L E Ð I L E G A    P Á S K AVið höfum haft það ljómandi á þessum fallega páskadegi, takk fyrir að spyrja. En þið?Í gær...
05/04/2026

G L E Ð I L E G A P Á S K A

Við höfum haft það ljómandi á þessum fallega páskadegi, takk fyrir að spyrja. En þið?

Í gær var líka ofsalega gaman. Troðfullt hús og salurinn í miklu stuði. Og vitiði, þið hafið einn séns í viðbót á að sjá Addams fjölskylduna í Félagsheimilinu Hvammstanga. Það er nefnilega ein sýning eftir. Á morgun, annan í páskum. Og ótrúlegt en satt, þá eru enn eftir miðar á þá sýningu – en þeir eru ekki margir. Þið finnið þá á tix.is.

"Og ef þú getur ekki gert þennan eina hlut fyrir mig, þá veit ég bara ekki hvað!"

N Æ S T S Í Ð A S T A  ! ! ! Næstsíðasti sýningardagurinn runninn upp og við trúum því varla. Það er jú uppselt í kvöld ...
04/04/2026

N Æ S T S Í Ð A S T A ! ! !

Næstsíðasti sýningardagurinn runninn upp og við trúum því varla. Það er jú uppselt í kvöld og miðar á
mánudagssýninguna fara hratt. Við viljum því bara minna ykkur á að skella ykkur á tix.is í miðakaup svo þið missið ekki af þeirri síðustu. Og þar skulið þið ganga úr skugga um að þið hafið fengið kvittun fyrir miðakaupunum, því annars hafa kaup ekki gengið í gegn.

Fyrirkomulagið á sýningunni í kvöld verður eins og á fyrri sýningum fyrir utan eina breytingu. Hleypt verður inn í sal kl. 19:30 í stað 19:45. Mikilvægt er líka að vera með miðana klára fyrir skönnun svo ekki myndist stífla. Oooog við viljum líka vekja athygli á ljósmyndum úr starfi leikflokksins sem hanga uppi í forsalnum og eru í myndaalbúmum í suðursal, þar sem er hægt að setjast niður og gæða sér á drykk og gotteríi.

Húsið opnar kl. 19:00.
Gott er að hafa miða klára (útprentaða eða í símanum) til skönnunar.
Pílufélag Hvammstanga verður með sölu á drykkjum snakki og sælgæti.
Hleypt er inn í sal kl. 19:30.
Sýning hefst kl. 20:00.
Á meðan á sýningu stendur þurfa símar að vera á hljóðlausri stillingu.
Áætlað er að sýningu ljúki um kl. 22:30.

Við hlökkum til að fá ykkur!

Við nöppuðum annars fleiri ummælum af samfélagsmiðlunum:

„Skrapp norður í gær á þessa frábæru sýningu. Þvílíkur metnaður, söngur, dans og búningar. Mæli eindregið með.“

„Sýningin öll er stórkostleg, leikur, söngur, dans, búningar, förðun, sviðsmynd…og bara allt. Verkið er
frumfllutt á Íslandi í þýðingu Sigurðar Líndal sem jafnframt leikstýrir.“

„Stórkostleg sýning hjá Leikflokkur Húnaþings vestra á Addams fjölskyldunni.
Að hugsa sér að það sé hægt að setja upp svona magnaða sýningu í svona litlu samfélagi
Fagmennska fram í fingurgóma “

„TAKK fyrir mig Leikflokkur Húnaþings vestra, þetta var algjör negla, ótrúlega flott og skemmtileg
sýning. Þvílík fagmennska, á heima í Þjóðleikhúsinu.“

U P P S E L T   E N   S A M T   A L L S   E K K I Sko. Við meinum að það er uppselt á næstu sýningu, laugardag, en enn e...
03/04/2026

U P P S E L T E N S A M T A L L S E K K I

Sko. Við meinum að það er uppselt á næstu sýningu, laugardag, en enn einhverjir miðar lausir á sýninguna annan í páskum. Fullt hús á sýningunni í gær og vel það. Við erum skuggalega ánægð með ykkur! Vitið þið hvað er gaman að sýna fyrir fullu húsi? Nei? Það er klikk sko.

Ef þið viljið næla ykkur í miða á mánudagssýninguna þá er um að gera að skella sér á tix.is.

Ben okkar, danshöfundur, þurfti frá að hverfa til síns heimalands langt langt í burtu. Bretlands. Við söknum hans, en við looooofum að hita upp með öllum þessum hoppum. Allt satt og rétt! Ef þið viljið fylgjast með Ben, þá er hann á Instagram – stundum -
https://www.instagram.com/benjamindiathcreative/

Vð vitum að það er heilagur hvíldardagur í dag, en við viljum samt leyfa ykkur að heyra þessi glóandi meðmæli:

„Metnaður, fagmennska, leiksigrar og svo margt annað kom upp í hugann eftir að hafa séð frumsýningu á Addams fjölskyldunni í uppsetningu Leikflokks Húnaþings vestra, í leikstjórn og þýðingu snillingsins Sigga Líndal. Þetta er í fyrsta skipti sem þetta vinsæla verk er sett upp á Íslandi og það er svo sannarlega ekki verið að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur.

Ég hafði miklar væntingar fyrirfram, enda hefur leikflokkurinn sett upp hverja snilldarsýninguna á fætur annarri síðustu árin og þessi sýning stóðst allar væntingar og rúmlega það.

Það var oft í sýningunni sem maður gleymdi því að þarna væri lítið áhugamannaleikhús í tæplega 1300 manna samfélagi að verki. Á stundum var eins og persónur leikritsins væru samdar með leikarana í hug, svoleiðis smellpössuðu þau í hlutverkin, hvert öðru betra. Margir leiksigrar unnir þetta kvöld.

Verkið hefur allt, það er fyndið og dramatískt, með flottum lögum, frábærum dönsum og góðum söng. Leikmynd, búningar, förðun, hljóð og lýsing, allt upp á 10. Að baki svona sýningu liggja hundruðir, ef ekki þúsundir klukkutíma í vinnu og það skilaði sér svo sannarlega á sviðinu. Þau sem eiga eftir að kaupa sér miða á sýninguna, vinsamlegast drífið í því, það má enginn missa af þessu. Ég hlakka svo til að sjá þetta aftur í Þjóðleikhúsinu í sumar“

Gaman!

02/04/2026

Þá er það sýning númer tvö. Við viljum minna á fyrirkomulagið og sérstaklega þetta að hafa miða klára fyrir skönnun.

Húsið opnar kl. 19:00.
Gott er að hafa miða klára (útprentaða eða í símanum) til skönnunar.
Pílufélag Hvammstanga verður með sölu á drykkjum snakki og sælgæti.
Hleypt er inn í sal kl. 19:45.
Sýning hefst kl. 20:00.
Á meðan á sýningu stendur þurfa símar að vera á hljóðlausri stillingu.
Áætlað er að sýningu ljúki um kl. 22:30.

Hlökkum til að fá ykkur!

02/04/2026

M E I R A S V O N A ! ! !

Sko. Í fyrsta lagi. Takk fyrir truflaðar móttökur á frumsýningunni í gær!

Við skemmtum okkur svakalega vel og vonum að þið hafið skemmt ykkur jafn vel. Ef þið viljið skemmta ykkur aftur svona vel, þá getum við tilkynnt að það eru enn til einhverjir miðar til kaups. Það er reyndar uppselt í kvöld, skírdag, en einhverjir miðar til á síðustu tvær sýningarnar. Um að gera að rúlla sér yfir á tix.is og sjá hvað er í boði.

Ég efast um að við þurfum mikið að sannfæra ykkur um miðakaup, en sjáið bara þessar umsagnir:

„VÁ VÁ VÁ!! 😍🤩
Leikflokkur Húnaþings vestra frumsýndi í kvöld bráðfyndna söngleikinn um Addams fjölskylduna.
Sýningu sem aldrei hefur verið sett upp á Íslandi, hér þýdd og leikstýrð af Sigurði bróður. Ég hef ekki
nægan orðaforða til að lýsa því hvað mér fannst þetta frábært svo ég segi bara: Ekki láta þessa
skemmtun fram hjá þér fara!“

“ Aaaalgerlega magnað hjá þessum frábæra leikflokki. Takk kærlega fyrir skemmtunina. Mergjuð þýðing. Frábær hópatriði. Snilldar svipsmynd og búningar. Hreint stórkostlegar einsöngsssenur. Frábær túlkun persóna. Takk og aftur takk fyrir.“

„Vá vá vá!!! Hæfileikarnir í þessu sveitarfélagi eiga sér auðvitað engin takmörk . 🤩 Í gær frumsýndi
Leikflokkur Húnaþings vestra leikritið Addams fjölskyldan í þýðingu og leikstjórn Sigurðar Líndal og
útkoman var mögnuð í alla staði 🤩

Takk kærlega fyrir mig Leikflokkur Húnaþings vestra, Sigurður Líndal Þórisson og allir sem að sýningunni koma. Það eru mörg handtökin við að koma upp svona stykki og langt í frá að vera sjálfgefið ❤️ Þetta var svo sannarlega leikhúsupplifun í hæsta gæðflokki og ég hvet alla þá sem ekki hafa tryggt sér miða að gera það hið snarasta 🤩🥰 "

A D D A M S   Á   R Ú VHinn eini sanni Sigurður Líndal leikstjóri vor ræddi við hinn eina sanna Magnús Hlyn fréttamann h...
01/04/2026

A D D A M S Á R Ú V

Hinn eini sanni Sigurður Líndal leikstjóri vor ræddi við hinn eina sanna Magnús Hlyn fréttamann hjá RÚV í hádegisfréttum dagsins. Ef það væri ekki að detta í páska, þá gætum við haldið að jólin væru komin. Uppáhalds tvenna dagsins!

Allavega.
Viðtalið má heyra í spilara RÚV og hana má nálgast í rituðumáli hér - https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-04-01-addams-fjolskyldan-hreidrar-um-sig-hja-hunvetningum-471535

F R U M S Ý N I N G  ! ! !Þá erum við hætt niðurtalningunni því frumsýningardagur Addams fjölskyldunnar er runninn upp! ...
01/04/2026

F R U M S Ý N I N G ! ! !

Þá erum við hætt niðurtalningunni því frumsýningardagur Addams fjölskyldunnar er runninn upp! Þá er fínt að fara yfir nokkra hluti og hverju þið megið eiga von á. Og þetta á við um allar sýningar. Svo viljum við rétt segja frá því að það eru aðeins fáir miðar eftir á skírdagssýninguna og laugardagssýninguna. Jæja. Hvar vorum við?

Húsið opnar kl. 19:00.
Gott er að hafa miða klára (útprentaða eða í símanum) til skönnunar.
Pílufélag Hvammstanga verður með sölu á drykkjum snakki og sælgæti.
Hleypt er inn í sal kl. 19:45.
Sýning hefst kl. 20:00.
Á meðan sýning er í gangi þurfa símar að vera á hljóðlausri stillingu.
Áætlað er að sýningu ljúki um kl. 22:30.

Við hlökkum til að fá ykkur!

Lítum svo á fleiri ummæli:

„Þetta er alveg frábær sýning. Mjög fyndið, vel leikin og alveg mögnuð sviðsmynd. Ég er viss um að enginn verður svikinn af þessari sýningu og ég mæli hiklaust með.

Það er ekki amlegt að hafa metnaðarfullt leikfélag á svona stað þar sem hæfileikaríkt heimafólk fær að láta ljós sitt skína. Ég hvet alla sem geta að styðja við þetta starf og mæta á sýninguna, það er þess virði.“

„Brjálæðislega fyndið, sviðsmyndin er fullkomin - þvílíkir díteilar, dansararnir sturlaðir og allir leikararnir hverjum öðrum betri og hreinlega blómstra. Þýðingin hjá Sigga er líka mjög töff. Við megum svo sannarlega vera stolt af okkar fólki og litla leikflokknum sem við eigum. Vinna s.l. mánuði hjá öllum sem að þessu koma skilar sér uppá 10.

Ef einhver krumpuð heilafruma er í vafa hjá ykkur með að fara og sjá þetta meistaraverk, drepið hana hið snarlega niður og kaupið miða.. þið munið ekki sjá eftir því... lofa !!!“

„Mér fannst magnað hvað þau eru dugleg að syngja og dansa. Einnig fannst mér endirinn skemmtilegur af því að hann var öðruvísi en maður er vanur, þar sem maður fékk þá tilfinningu að vera partur af sýningunni.“

Uppselt á frumsýningu en miðasala á aðrar sýningar á tix.is.

E I N N    D A G U R   ! ! !Einn dagur í eitt meðalkvöld. Einn dagur í Fest-air. Einn dagur í rifrildíum. Oooog einn dag...
31/03/2026

E I N N D A G U R ! ! !

Einn dagur í eitt meðalkvöld. Einn dagur í Fest-air. Einn dagur í rifrildíum. Oooog einn dagur í frumsýningu!

Áhorfendur hafa verið á einu máli um margt, m.a. hversu flott heildarmyndin er. Ein mögnuð staðreynd því tengdu er að við höfum ekki þurft að leigja neinn ljósabúnað (en lánuð fjögur ljós hjá samstarfsaðila, af 50 ljósum) þar sem félagsheimilið er orðið svo vel búið. Önnur mögnuð staðreynd er að af öllum þeim hljóðnemum sem notaðir eru í sýningunni eru aðeins fjórir sem þarf að leigja. Það skiptir öllu máli að hafa svo vel útbúið félagsheimili þegar verið er að taka ákvörðun um verk sem skal ráðast í.

Annars skulum við heyra frá áhorfendum á generalprufu gærkvöldsins:

"Þvílík frammistaða, verkið í heild vel uppsett, þýðingin frábær og húmorinn kemst vel til skila. Ekki að sjá að hér sé um áhugaleikhús að ræða. Ekki láta þetta framhjá ykkur fara."

Fleiri umsagnir á leiðinni svo þið getið verið spennt. Við tökum fagnandi á móti umsögnum frá ykkur ♡

Miðsala er enn á tix.is.

T V E I R    D A G A R   ! ! ! Taaaaveiiiiir dagar! Það er ekki laust við spennu í maga. Æi þið vitið. Tilhlökkun með da...
30/03/2026

T V E I R D A G A R ! ! !

Taaaaveiiiiir dagar! Það er ekki laust við spennu í maga. Æi þið vitið. Tilhlökkun með dass af fleiri klósettferðum. Eruð þið ekki að tengja?

Í kvöld er svo generalprufa með öllu tilheyrandi, förðun og hárgreiðslu sem er í höndum algerra snillinga.

Við erum annars með aðra upplifun áhorfanda til að deila með ykkur:

"Í gær fékk ég að sitja í salnum í félagsheimilinu & horfa á rennsli hjá leikflokknum á gamansöngleiknum Addams fjölskyldan & skemmti mér stórkostlega. Bráðfyndið & hef ég ekki tölu á hversu oft ég skellti uppúr."

"Eftir á fór ég að hugsa hversu frábær hópur það er sem stendur að leikflokknum á Hvammstanga. Þau eru svo áhugasöm & gera þetta af svo mikilli gleði & faglega. Bæjarfélagið er ríkt að eiga svona hóp & vonandi fara sem flestir á sýninguna & styðja við bakið á leikflokknum.

Að lokum - rafrænt klapp, takk fyrir mig, þið eruð frábær & þið sem farið að sjá Addams fjölskylduna, góða skemmtun."

Jihh! Takk fyrir þessi fallegu orð. Við förum næstum því hjá okkur.

Miðasalan er á tix.is ef einhver gleymdi 😉

29/03/2026

Þ R Í R D A G A R ! ! !

Ekki á morgun, ekki hinn, heldur hinn!
Aftur vorum við með áhorfendur í sal í gær og vitaskuld urðu þeir ekki fyrir vonbrigðum:

"Þeir sem eiga miða á Addamsfjölskylduna eiga von á geggjaðri leikhúsupplifun og þeir sem eiga ekki miða skulu drífa sig í að krækja sér í miða 🤣 "

Ef einhver er í vandræðum með að versla miða á tix.is þá getum við aðstoðað. Hendið á okkur línu hér eða á [email protected] og við finnum út úr því saman.

Annars erum við bara spilandi kát!
Hæfæv!

Address

Klapparstígur 4
Hvammstangi
530

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Leikflokkur Húnaþings vestra posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Leikflokkur Húnaþings vestra:

Share