Barnó - Best Mest Vest

Barnó - Best Mest Vest Barnamenningarhátíð Vesturlands þar sem gleði, sköpun og leikur barna eru í forgrunni! Fylgist með dagskrá hér á Facebook og ssv.is/barno.

Fjölbreytt dagskrá um allt Vesturland – listir, tónlist, dans, leikur og ævintýri!

30/03/2026

VÁ VÁ VÁ hvað þetta er geggjað!

ÚRSLIT! Nú hefur dómnefnd á vegum Júlíana - hátíð sögu og bóka lokið störfum sínum og krýnt sigurvegara í ljóðasamkeppni...
26/11/2025

ÚRSLIT!

Nú hefur dómnefnd á vegum Júlíana - hátíð sögu og bóka lokið störfum sínum og krýnt sigurvegara í ljóðasamkeppni Júlíönu og Barnó! 👑

Það voru ungskáld frá Grunnskóla Borgarfjarðar, Grunnskólanum í Grundarfirði og Lýsuhólsskóla sem unnu titilinn! Sigurvegararnir fá glæsilega vinninga frá Barnó og Júlíönu - hátíð sögu og bóka.

En formleg afhending verðlauna verður á bókmenntahátíðinni sem fram fer í Stykkishólmi í mars 2026!

Til hamingju, snillingar!!!

VOPSALOPSA!!! Barnó - Best! MEST! VEST! lauk formlega síðustu helgi og við erum bara að ná andanum... HJEEELINGS af æðis...
22/11/2025

VOPSALOPSA!!! Barnó - Best! MEST! VEST! lauk formlega síðustu helgi og við erum bara að ná andanum... HJEEELINGS af æðislegum viðburðum um allt Vesturland þar sem vestlenskir krakkar fengu að skapa, njóta og taka þátt.

Við erum hress og sæl og líka kát með hvernig gekk og sendum þakkir til allra þeirra sem tóku þátt og gerðu sitt af algjörri snilld - sérstaklega þessa frábærru krakka sem eru á Vesturlandi.

Við þökkum líka Sóknaráætlun Vesturlands og Barnamenningarsjóði fyrir ríflegan stuðning svo að Barnó gæti orðið að veruleika.

og áfram barnamenning!

P.S. Við erum strax farin að skipuleggja næstu Barnó - viljið þið vera memm???

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi Akraneskaupstaður Hvalfjarðarsveit - sveitarfélag Borgarbyggð Sveitarfélagið Dalabyggð Sveitarfélagið Stykkishólmur Grundarfjarðarbær Snæfellsbær List fyrir alla

Hvað er að gerast í Skallagrímsgarði í Borgarnesi??? Nú er greinilega þunnt á milli hulinsheima! Litlar verur eru nú sýn...
11/11/2025

Hvað er að gerast í Skallagrímsgarði í Borgarnesi??? Nú er greinilega þunnt á milli hulinsheima! Litlar verur eru nú sýnilegar í garðinum og við SKORUM á öll sem eiga leið um að sjá þessu oggulitu híbýli!

Verkefni unnið í samstarfi Barnó og myndmenntarinnar í Grunnskólinn í Borgarnesi þar sem nemendur í 10. bekk sköpuðu listaverkin.
..og það er meira! Hægt er að nálgast skógarbingó og orðasúpu þannig að nú geta fjölskyldur farið og notið útisýningarinnar! 👉 https://drive.google.com/file/d/1jDGbfhwvpPDKtRUGv1Z7BQ65_8V7W84H/view

Nyd de videoer og den musik, du holder af, upload originalt indhold, og del det hele med venner, familie og verden på YouTube.

❤️
11/11/2025

❤️

Dúkkulísann gerði allt vitlaust á smiðju ÞYKJÓ í Gamla ráðhúsinu í Borgarnesi nú í vikunni! Ótrúlega mergjuð smiðja - me...
07/11/2025

Dúkkulísann gerði allt vitlaust á smiðju ÞYKJÓ í Gamla ráðhúsinu í Borgarnesi nú í vikunni! Ótrúlega mergjuð smiðja - með kleppaðri útkomu!!!

Við þorum að veðja að það er fatahönnuður að fara að koma úr þessum hópi frábærra krakka í Grunnskólinn í Borgarnesi! 🪡🧥🥼👚👕👗

📸 Írís Sól Þrastardóttir

Við kynnum með stolti hið frábæra Handbendi Brúðuleikhús sem kemur með alveg hreint geggjaða smiðju á þrjá staði á Vestu...
07/11/2025

Við kynnum með stolti hið frábæra Handbendi Brúðuleikhús sem kemur með alveg hreint geggjaða smiðju á þrjá staði á Vesturlandi!

Á Tröllasmiðju Handbendis mætast þjóðmenningin, sköpunin og endurnýtingin þar sem TRÖLLIN vakna til lífsins úr því sem fellur til í daglegu lífi - bókstaflega!

Smiðjurnar verða á eftirfarandi stöðum:

🤡 Dalabúð í Búðardal - 9. nóvember klukkan 14:00 (https://fb.me/e/82jJgwtlJ)

🧌Amtsbókasafnið í Stykkishólmi - 11. nóvember klukkan 16:00 (https://fb.me/e/cayPQa0HW)

🧚‍♂️ Félagsmiðstöðin Óðal - 12. nóvember klukkan 16:00 (https://fb.me/e/3QxHmBT7x)

Svo æðislegageggjaðslegafrábært!!!!

Address

Bjarnarbraut 8
Borgarnes
310

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Barnó - Best Mest Vest posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Barnó - Best Mest Vest:

Share