15/07/2021
Jæja dömur mínar, herrar, og allt þar á milli...
Þá er komið að því sem mörg okkar hafa beðið eftir í allt sumar! Nú á að opna lyftuna okkar, Fjarkann, í dag klukkan 1700 og verður hún keyrð fjóra daga í viku til og með 5. september! Komið og njótið alls þess sem Hlíðarfjall Akureyri hefur upp á að bjóða yfir sumartímann. Hvort sem það eru hjólabrautir, gönguleiðir, útsýnið, toppurinn, nálægðin við fjöllinn eða bara útivera, þá hefur Hlíðarfjall það allt og lyftan gerir það auðveldara og aðgengilegra fyrir alla, unga sem aldna.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í Fjallinu í sumar!