Uppinn

Uppinn UPPINN er vettvangur fyrir tónlistarfólk að spila sína tónlist, mynda sambönd og ná til nýrra aðdáenda.

Sumar-Uppi núna á fimmtudaginn á Vamos! Litlar 2500kr inn 🎶 Tónleikar hefjast kl 21:00Nánar um böndin hér að neðan; Spac...
07/07/2025

Sumar-Uppi núna á fimmtudaginn á Vamos!
Litlar 2500kr inn 🎶 Tónleikar hefjast kl 21:00
Nánar um böndin hér að neðan;

Spacestation stimplaði sig rækilega inní tónlistarsenuna fyrr í ár. Þeir hlutu Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir besta rokklag ársins, “Í draumalandinu”, síðastliðinn mars. Þeir troðfylltu Græna Hattinn fyrir skömmu og nú koma þeir fram á Uppanum ásamt…

SÓT á rætur sínar að rekja til Stykkishólms og Akureyrar. Tónlistinni má lýsa sem blöndu psychedelic stefnunni, Doom-metal og pönki. Í tregafullri tónlistinni má þó glitta í fegurð og hlýju, sem sýnir manni að ekki er allt sem sýnist.

Fólkið okkar. Part 1. Við erum heppin með samfélagið okkar hér á Akureyri. Hér má sjá Sigfús Jónsson í miðri pásu við að...
29/05/2025

Fólkið okkar. Part 1.

Við erum heppin með samfélagið okkar hér á Akureyri. Hér má sjá Sigfús Jónsson í miðri pásu við að stilla upp næstkomandi Uppa.

Sigfús er hljóðmaður búsettur á Akureyri. Hann hóf nám við Tónlistarskólann á Akureyri árið 2017 og setti fyrir sig upptökutækni og hefur ekki lítið um öxl síðan. Sigfús, eða “Fúsi”, hefur komið að mörgum verkefnum í gegnum árin; mixað og masterað plötur, spilað á böllum, mixað ótal tónleika og hefur sett sitt mark á menningarsögu Akureyrar.

Hann er gæðablóð, lausnarmiðaður og við erum heppin að eiga hann að. Fúsi er rólyndismaður og finnst gaman að spjalla um allt og ekkert. Svo ekki hika við að nippa í hann.
Hann verður á tökkunum á morgun þar sem ariarelius og Tonnatak stíga á svið.

Uppinn er núna á föstudaginn!🎶 Við fáum til okkar Tonnatak og Ara Árelíus🎶 Hér er um að ræða stórskemmtilega blöndu af f...
24/05/2025

Uppinn er núna á föstudaginn!🎶

Við fáum til okkar Tonnatak og Ara Árelíus🎶 Hér er um að ræða stórskemmtilega blöndu af frábærum artistum. Nánar um það neðar⬇️
Tónleikar eru 30.maí kl 21:00 á Vamos AEY - Kaffihús og Bar og það er frítt inn!


ARI ÁRELÍUS spilar á Uppanum og flytur verk af væntanlegri plötu sinni Hulin Hönd, ásamt lögum af plötu sinni Hiatus Terræ.
Ari tekur með sér tvær öflugar raddir úr evrópska tónlistarheiminum: þýska saxófónleikarann Moritz Christiansen og maltverska gítarleikarann Glen Montanaro. Þremenningarnir nálgast tónsmíðar Árelíusar með ferskum hljóðheimi þar sem fjalla fönkaðir sálartónar, djass og sækadelía mætast.

Búast má við leikandi samspili, ríku hljóðmálverki og óvæntum beygjum þar sem félagarnir kannar mörkin milli forms og frjálsrar tjáningar.

—————————-

TONNATAK er pönk- og rokkhljómsveit sem á rætur sína víða. Þar má finna áhrif frá blús- og reggí, rokkabillí, klassísku rokki og frá hippatímabilinu. Lögin eru flest stutt með áherslu á góða íslenska texta og dágóðum skammti af húmor. Margir textarnir fela í sér nýyrðasmíði líkt og titlarnir Jaðarber og Ellihrellir bera vott um.
Hljómsveitina skipa Haukur Pálmason, Daníel Starrason, Þorsteinn Gíslason og Kristján Pétur Sigurðsson.

Hönnun á poster: Tómas Leó Halldórsson

UPPINN 2.maí! Frá skammdegisþunglyndis til diskóljósa🪩. Jónfrí fór með okkur frá Akureyri til Malaga. Maður dansar líka ...
05/05/2025

UPPINN 2.maí! Frá skammdegisþunglyndis til diskóljósa🪩. Jónfrí fór með okkur frá Akureyri til Malaga. Maður dansar líka mikið betur þar🍹Biggi Maus & Memm lokuðu kvöldinu: Hljóðveggur sem skall á manni eins og undiralda úr djúpinu💥Angurvær nýtómantískur rytmi sem lamdi mann eins og nostalgían😩

📸Ljósmyndir í lit Daníel Starrason Photography /
🎥Ljósmyndir í svart-hvítu Sindri Swan

Kærar þakkir til allra sem komu að kvöldinu Akureyri Backpackers Exton Akureyrarbær Geimstofan Tómas Leó Halldórsson HljóðAK Halldór Kristinn Harðarson Birgir Örn Steinarsson Jónfrí Vamos AEY - Kaffihús og Bar

Biggi Maus & Memm ásamt Jónfrí mæta til okkar 2.maí!🎵🎉Biggi gaf nýverið út plötuna "Litli Dauði/Stóri Hvellur" við glimr...
25/04/2025

Biggi Maus & Memm ásamt Jónfrí mæta til okkar 2.maí!🎵🎉

Biggi gaf nýverið út plötuna "Litli Dauði/Stóri Hvellur" við glimrandi undirtektir. Hann hefur verið iðinn við kolann síðastliðin ár á sinni sóló-vegferð og ætlar hann, ásamt hljómsveitinni Memm, að leggja spilin á borðið á Uppanum og bjóða okkur í töfrandi hljóðheim nýrómantískrar nostalgíu, trega, efans, vonar og þrá😍

Jónfrí hefur slegið í gegn á síðustu árum með lögum eins og "Andalúsía" og "Aprílmáni". ☀️🌙 Stórskemmtileg tónlist sem nær utan um hina íslensku þjóðarsál.
Með smá kæruleysislegu ívafi semur Jónfrí um leit okkar að hinni fullkomnu stemningu, draumum og þrám og ískaldan hversdagsleikann. En fegurðin býr einmitt þar😎

Kærar þakkir til samstarfsaðilum Uppans:
Akureyrarbær
Exton
Geimstofan
Tómas Leó Halldórsson
HljóðAk
Landsvirkjun
Vamos AEY
Backpackers Akureyri


Föstudagurinn Langi 😎💥Allir fengu Hælsæri sem ekkert krem fékk læknað👹& Fríða Dís leiddi okkur aftur í nostalgíuna með b...
24/04/2025

Föstudagurinn Langi 😎💥
Allir fengu Hælsæri sem ekkert krem fékk læknað👹
& Fríða Dís leiddi okkur aftur í nostalgíuna með bassann að vopni 🎵
-Uppinn er grósku-vettvangur fyrir alls konar íslenska tónlist-🎉
Næsti viðburður verður tilkynntur bráðlega!

Ljósmyndir: Drengurinn Fengurinn

  á þegar Saint Pete og Big Joe mættu til okkar 4.apríl 😎Sjóðandi heitir strákarnir stóðu fyrir sínu og  festi stemningu...
24/04/2025

á þegar Saint Pete og Big Joe mættu til okkar 4.apríl 😎
Sjóðandi heitir strákarnir stóðu fyrir sínu og festi stemninguna á filmu🎉
Uppinn er grósku-vettvangur íslenskrar tónlistar. Það er öllum velkomið að sækjast í að spila🎵

UPPINN verður á föstudaginn langa kl 21:00 á Vamos Grande! 🎉Fríða Dís ásamt hljómsveit mætir til okkar og strákarnir okk...
14/04/2025

UPPINN verður á föstudaginn langa kl 21:00 á Vamos Grande! 🎉
Fríða Dís ásamt hljómsveit mætir til okkar og strákarnir okkar góðkunnu í "Hælsæri" opna showið! 🎵Það er stórskemmtilegt kvöld í vændum; fullt af sudda pönki og riffum😍, geggjuðu poppi og rokki 😎og saman skulum við því skála fyrir nýrri tónlist, núna á föstudaginn! Sjáumst á Uppanum!!

Þökkum samstarfsaðilum okkar;


BG4 Guesthouse

@ erum.haelsaeri
@

Okkur hlakkar til að taka á móti ykkur! Kl21:00Það verður hiti í kvöld 🔥
04/04/2025

Okkur hlakkar til að taka á móti ykkur! Kl21:00
Það verður hiti í kvöld 🔥

Eruð þið ekki pottþétt búin að taka föstudagskvöldið frá?🔥💥
Uppinn verður haldinn á efri hæðinni á Vamos
Þetta verður veisla! FRÍTT INN

Eruð þið ekki pottþétt búin að taka föstudagskvöldið frá?🔥💥Uppinn verður haldinn á efri hæðinni á VamosÞetta verður veis...
01/04/2025

Eruð þið ekki pottþétt búin að taka föstudagskvöldið frá?🔥💥
Uppinn verður haldinn á efri hæðinni á Vamos
Þetta verður veisla! FRÍTT INN

Address

Vamos AEY/Kaffihús Og Bar
Akureyri
600

Telephone

+3548487701

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Uppinn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Uppinn:

Share