Listasumar/ Summer Festival of the Arts

Listasumar/ Summer Festival of the Arts Listasumar á Akureyri er ómissandi þáttur í sumarflóru Akureyrarbæjar og setur líflegan og hátíðlegan svip á bæinn.

Fjölbreytt dagskrá Listasumars frá Jónsmessu að Akureyrarvöku þar sem boðið er upp á yfir hundrað viðburði, er mikilvægur og ómissandi þáttur í menningarlífi á svæðinu bæði fyrir heimamenn og ferðalanga. Fastir dagskrárliðir Listasumars eru djasskvöld á Heitum fimmtudögum, hádegistónleikar á föstudögum og Sumartónleikar í Akureyrarkirkju í júlímánuði. Auk myndlistasýninga í Listasafninu, Ketilhúsi

nu og Deiglunni eru settar upp fjölbreyttar sýningar í galleríum og vinnustofum á svæðinu. Söfnin á Akureyri, í Eyjafirði og í Þingeyjarsýslum eru hvert um sig með einstakar sýningar og bjóða upp á ýmsa viðburði. Fjölmargir aðrir viðburðir eru undir hatti Listasumars sem nánar eru kynntir í bæklingi Listasumars sem gefinn er út á íslensku og ensku. Menningarmiðstöðin Listagili
Listasumar á Akureyri
Valdís Viðarsdóttir
forstöðumaður og framkvæmdastjóri


---------------


One of the most diverse cultural life in Akureyri-town is Listasumar - The Summer Festival of the Arts, which is a joint project by all those who are engaged in promoting cultural activities in Akureyri during the summer. The Summer Arts Festival starts with the Midsummer Night Festival on June 23rd every year, and for ten weeks you can enjoy e.g.: concerts, exhibitions, dancing, theatre, literature and more. The Cultural center of the Art center issue a program/brochure embracing all the events for the whole ten weeks every year. Search out for one in the nearist tourist bureau. Listagil Cultural Center
Summer Festival of the Arts
Valdís Viðarsdóttir
manager

17/08/2011
14/08/2011

Hvernig væri að ljúka helginni með því að kíkja á nýopnaðar sýningar í gilinu? Opið til 17:00 í dag og svo 13:00-17:00 alla næstu viku - líka á mánudaginn :)

Við mælum með þessari dagskrá fyrir dansáhugafólk!
10/08/2011

Við mælum með þessari dagskrá fyrir dansáhugafólk!

04/08/2011

ATH!! Djassinn sem er auglýstur í Deiglunni í kvöld verður í Ketilhúsinu í staðin! Hlökkum til að sjá sem flesta í brasilískri stemningu :)

04/08/2011

Nú er síðasta sýningarhelgi að renna upp. Systrasýning í Ketilhúsinu, samsýning Drafnar og Jóhönnu Friðfinnsdætra og sýning Evu G. S. í Deiglunni, „Remix móment 2009“. Ekki láta þær framhjá ykkur fara!

Útrásarvíkingar Kristjáns Jóhannssonar, Raddir Norðursins verða með tónleika í Ketilhúsinu á Akureyrarvöku þann 28. ágús...
04/08/2011

Útrásarvíkingar Kristjáns Jóhannssonar, Raddir Norðursins verða með tónleika í Ketilhúsinu á Akureyrarvöku þann 28. ágúst kl. 16:00. Hér er skemmtileg umfjöllun um þau á Pressunni. Það verður spennandi að heyra í þeim rétt áður en þau halda á vit ævintýranna!

Kristján Jóhannsson heldur utan í september ásamt fjórum af nemendum sínum en ætlunin er að kynna þá fyrir ítölskum umboðsmönnum og ráðandi fólki í tónlistarlífi þar ytra.

29/07/2011

Þeim finnst Listasumar vera frábært framtak Akureyrarbæjar !

Það má segja að Trúbadúrparið Fúsi Ben og Vordísin, þau Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir og Sigfús Arnar Benediktsson séu...
29/07/2011

Það má segja að Trúbadúrparið Fúsi Ben og Vordísin, þau Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir og Sigfús Arnar Benediktsson séu falinn fjársjóður í Skagafirði, en þau koma bæði frá Sauðárkróki. Þau semja eigin blús og flytja gamla og góða kósí blús og rokktónlist, s.s. eftir Lennon, Dylan og Janis Joplin. Vordísin er með fína rödd í blúsinn og er auk þess í hljómsveitinni Contalgen Funeral. Fúsi er flinkur á gítarinn, er í hljómsveitinni Bróðir Svartúlfs og rekur auk þess stúdíó BenMen á Sauðárkróki.
“Tónlistin á okkur”, segja þau og fullyrða að þau hafi sko nóg að gera á Sauðárkróki auk þess sem þau hafa tekið þátt í trúbadorakeppni Fm og komist í úrslit og tekið þátt í Lennon cover laga keppni Rásar 2 og komist í úrslit. Í augnablikinu eru þau að skipuleggja tónlistarhátíðina “Gæran” sem haldin er á Sauðárkróki 12. og 13. ágúst.
Takk fyrir tónleikana í Ketilhúsinu Fúsi og Vordís

27/07/2011
26/07/2011

Helgin er búin að vera góð, vel sóttar sýningaropnanir í frábæru veðri, takk fyrir komuna! Þið sem eigið eftir að koma, verið velkomin :)
Sýningarnar standa til 7. ágúst...

22/07/2011
Erna G.S. er að leggja lokahönd á uppsetningu sýningar sinnar "Remix móment 2009" sem opnar á laugardaginn...
21/07/2011

Erna G.S. er að leggja lokahönd á uppsetningu sýningar sinnar "Remix móment 2009" sem opnar á laugardaginn...

Address

Menningarmiðstöðin í Listagili
Akureyri
600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Listasumar/ Summer Festival of the Arts posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Listasumar/ Summer Festival of the Arts:

Share