13/06/2021
SKRÁNING Á NÁMSKEIÐIÐ Í JÚNÍ FER VEL AF STAÐ :)
Stórskemmtilegt námskeið fyrir 11-17 ára í leiklist og söng, tilvalið fyrir þau sem vilja koma fram og ná til áhorfenda. Á námskeiðinu verður farið í söngtækni, framkomu, leiktækni og spuna. Nemendur fá þjálfun í réttri raddbeitingu, læra leiktjáningu í söng og að syngja með lifandi undirleik. Áhersla verður lögð á söng, sjálfstraust og gleði.
Námskeiðið er kennt frá mánudeginum 21. júní til föstudagsins 25. júní í Deiglunni og er skipt upp í tvo hópa eftir aldri.
- 11-13 ára eru frá kl 8:30 - 12:30
- 14-17 ára eru frá kl 13:00 - 17:00
Verð á námskeiðinu er 39.900 kr (10.000 kr staðfestingargjald innheimt við skráningu).
Kennarar eru Arna Rún Ómarsdóttir (Complete Vocal Technique söngkennari) og Bjartmar Þórðarsson (leikstjóri, leikari og Complete Vocal Technique söngkennari).
Skráning og nánari upplýsingar á síðu námskeiðsins, í s. 8678922 (Arna) eða [email protected]